Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   fim 18. september 2014 08:00
Aðsendir pistlar
Pistill: Pistlar á Fótbolta.net eru viðhorf höfundar og þurfa ekki endilega að endurspegla viðhorf vefsins eða ritstjórnar hans.
Líf eftir Van Gaal
Aðsendir pistlar
Aðsendir pistlar
Runólfur Trausti Þórhallsson.
Runólfur Trausti Þórhallsson.
Mynd: Úr einkasafni
Louis van Gaal, stjóri Manchester United.
Louis van Gaal, stjóri Manchester United.
Mynd: Getty Images
Van Gaal ásamt Radamel Falcao og Daley Blind.
Van Gaal ásamt Radamel Falcao og Daley Blind.
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
„I remember thinking: “Have you not read up on this club’s history? This club was built on wingers. It only goes back about 100 years!” þetta skrifar Rio Ferdinand, í nýrri sjálfsævisögu sinni, um David Moyes.

Rio var sem betur fer ekki leikmaður Manchester United þegar Louis Van Gaal tók við liðinu, honum hefði eflaust brugðið þegar Van Gaal tilkynnti leikmannahópnum að hann ætlaði sér að spila leikaðferðina 3-4-1-2 og að það væru engir kantmenn heldur vængbakverðir (e. wingback) sem ættu að fara upp og niður kantinn. Eftir nokkur slæm úrslit, þar má helst nefna 4-0 tap gegn MK Dons í Deildabikarnum, ásamt kaupum á nokkrum dýrindis leikmönnum í lok gluggans þá skipti Van Gaal um leikaðferð gegn Q.P.R, liðið spilaði 4-4-2 með tígulmiðju.

Upprunalega ástæða Van Gaal fyrir leikkerfinu 3-4-1-2 var svo hann gæti komið Wayne Rooney, Robin Van Persie og Juan Mata öllum fyrir í byrjunarliðinu í sínum stöðum. Með tilkomu Angel Di Maria og Daley Blind þá virðist Van Gaal hins vegar hafa tekið þá ákvörðun að leikaðferðin 4-4-2, með tígulmiðju, skili því sama og 3-4-1-2. Sem og hún gerir, en það verður rætt frekar hér að neðan.

Haustið 2012 gerði þáverandi þjálfari Manchester United, Sir Alex Ferguson, svipaða tilraun, það er að spila með tígulmiðju. Það er erfitt að átta sig á af hverju Ferguson ákvað að spila með tígulmiðju, ef til vill fannst honum liðið vera of opið í gegnum miðjuna en liðið hafði tapað tveimur af fyrstu sex leikjunum á þessum tímapunkti og fengið á sig níu mörk. Aðal ástæðan er þó líklega sú að á þessum tíma voru Ashley Young, Nani og Antonio Valencia allir meiddir og því hentugast að spila með tígulmiðju þar sem hún þýddi að liðið væri ekki að spila miðjumönnum eða sóknarmönnum á vængnum. Þegar Ferguson var svo spurður út í tígul miðjuna þá lét hann þessi orð falla; „If it turns out as a consistent team selection from me, playing a diamond, it is revolutionary because we're going against our history.”

Það eru því engar ýkjur að Louis Van Gaal sé að fara á ótroðnar slóðir með Manchester United. Árangur Manchester United og kantmenn haldast í hendur, allt frá George Best til Ryan Giggs og Cristiano Ronaldo. Mest áberandi leikmenn liðsins og helstu stjörnur undanfarin ár hafa oftar en ekki spilað á vængnum. Van Gaal virðist þó hafa tekið þá ákvörðun að Wayne Rooney, Robin Van Persie (og nú Falcao) og Juan Mata í sínum réttu stöðum séu hættulegri heldur en að viðhalda kantmanna hefðinni hjá Manchester United.

Leikmannakaup Van Gaal ýta enn fremur undir þrá hans til að spila án kantmanna en Angel Di Maria og Daley Blind smellpassa inn í núverandi leikkerfi Manchester United. Það er mýta til staðar varðandi það að Di Maria sé að upplagi kantmaður en bestu frammistöður hans með Real Madrid og argentíska landsliðinu hafa allar komið þegar hann spilar á miðri miðjunni. Á meðan hefur Blind hefur verið lýst sem hinum hollenska Michael Carrick, hann les leikinn einstaklega vel, fer eftir fyrirmælum og bindur vörnina saman. Ef miðað er við leikinn gegn Q.P.R þá situr Blind rétt fyrir framan öftustu tvo varnarmenn liðsins og myndar þannig í raun þriggja manna varnarlínu sem gefur bakvörðunum öryggið sem þeir þurfa til að bomba upp og niður vænginn allan leikinn.

Auðvitað hjálpar það svo að hafa menn á borð við Di Maria og Herrera þar fyrir framan en þeir hafa báðir gífurlega hlaupagetu, vinna mikið fyrir liðið og eru almennt talið einstaklega góðir í fótbolta. Þó svo að ég hafi alltaf verið mikill aðdáandi bæði Darren Fletcher og Anderson þá hafa þeir ekki tærnar þar sem Di Maria og Herrera hafa hælana. Til að renna enn frekari stoðum undir plön Van Gaal þá hefur hann gert sitt besta til að losa sig við þá kantmenn sem fyrir voru hjá félaginu. Luis Nani er farinn heim til Lisabon á láni, Wilfried Zaha fór aftur til Crystal Palace á láni og Ashley Young hlýtur að fara sömu leið í næsta glugga. Hann hefur þó verið notaður í vængbakvarðar stöðunni en með kaupunum á Marcos Rojo hljóta dagar hans að vera taldir.

Eftir stendur einn kantmaður liðsins, Antonio Valencia. Hann fær líklega að vera áfram í herbúðum Manchester United svo lengi sem liðið kaupir ekki annan hægri bakvörð. Hann getur leyst þá stöðu ágætlega og svo hefur hann spilað á miðri miðjunni með landsliði Ekvador svo Van Gaal gæti því séð hann sem fínan varamann í fleiri en eina stöðu. Að sama skapi var Shinji Kagawa seldur en hann hafði spilað spilað á vængnum hjá bæði Ferguson og Moyes, með tilkomu nýja leikkerfisins hefði spilatími hans minnkað enn frekar sem og hann væri að taka dýrmætar mínútur frá Adnan Januzaj.

Þá komum við að milljón dollara spurningunni; Af hverju í andskotanum er ég að velta þessu fyrir mér? Fyrir utan þá ástæðu að mér leiðist þá er augljóst að Louis Van Gaal er ekki að fara vera við stjórnvölin hjá Manchester United jafn lengi og Sir Alex Ferguson. Van Gaal er fæddur 1951 sem gerir hann 63 ára. Hann skrifaði undir þriggja ára samning við Manchester United, það hefði verið hægt að gefa honum fimm ára saming eins og viðgengst nú til dags (Moyes fékk SEX ára samning) en aldur hans hlýtur að spila inn í þegar kom að lengd samningsins. Þetta leiðir mig að annarri spurningu, hvað gerist eftir að Louis Van Gaal hættir sem knattspyrnustjóri Manchester United?

Stuttu eftir að Van Gaal var ráðinn þá sagði hann í viðtali að hann hefði verið ráðinn til Manchester United út af hugmyndafræði sinni. Þó það sé erfitt að setja fingurinn nákvæmlega á hver nákvæmlega hugmyndafræði hans er þá er nokkuð ljóst að hann er búinn að rífa eina af grunnstoðum (hér á ég við kantmenn liðsins) eins stærsta og sigursælasta íþróttafélags heims í sundur. Maður á erfitt með að trúa því að hann hafi verið ráðinn og fengið leyfi til að gera það sem honum sýnist, bara til þess eins að nýr þjálfari komi inn eftir þrjú ár og sá hinn sami þurfi að byggja allt upp á nýtt. Ég ætla allavega að leyfa mér að efast um það.

Það er nú ekki oft sem knattspyrnufélög, allt frá stjórnarmeðlimum til stuðningsmanna, hugsa langt fram í tímann. Oftast á að ná árangri strax, helst í gær. Það gæti þó ekki verið að Glazier fjölskyldan hafi lagst í alvöru rannsóknarvinnu þegar kom að því að finna nýjan stjóra? Það hlýtur eiginlega að vera, ekki máttu liðið við öðru skelfingar tímabili eins og David Moyes bauð upp á. Á endanum varð umræddur Louis Van Gaal fyrir valinu, í leit minni af upplýsingum um manninn rakst ég á þessa lýsingu; „He has the arrogance of Jose Mourinho, the megalomania of Alex Ferguson, the fanaticism of Pep Guardiola and the manners of Sam Allardyce". Hvort þetta sé jákvætt skal ósagt látið. Það virðist þó vera að stjórnarmenn Manchester United hafi lagst í alvöru rannsóknarvinnu þegar kom að því að ráða nýjan stjóra, og mögulega hugsað meira en 1-2 ár fram í tímann.

Svo virðist vera sem þeir hafi hugsað hvernig mætti bæta liðið og gera það samkeppnishæfara gagnvart stærstu liðum í heimi á komandi árum frekar en hvaða leið myndi færa þeim mestan pening í kassann. Þó svo að það sé augljóst að Manchester United sé ekki að fara rúlla upp deildinni í vetur þá hefur eyðsla liðsins gefið það í skyn að liðið ætlar sér að vera í bullandi toppbaráttu næstu árin, hvort það takist eða ekki verður að koma í ljós. Ég get auðvitað ekki svarað spurninginni um hvað fór fram á bakvið tjöldin þegar kom að ráðningu Van Gaal, ég veit í raun ekkert hvort Glazier fjölskyldan sjálf réð Van Gaal eða hvort aðrir meðlimir stjórnarinnar voru þar að verki en ég veit það (ég vona) að ráðning hans sé með meira en aðeins næstu 2-3 tímabil í huga.

Málið með Van Gaal er nefnilega það að þó hann hafi ekki verið við stjórnvölinn hjá liðunum þegar gullaldarár þeirra stóðu sem hæst þá má sjá greinileg fingraför hans á sigursælustu liðum Evrópu síðastliðin 5-6 ár. Hér er ég að tala um Barcelona og FC Bayern München. Það skal þó tekið fram að Van Gaal hefur unnið titla hvert sem hann fer, þar á meðal með Barcelona og FC Bayern. Hann var þó hvergi sjáanlegur þegar Barcelona tók yfir Evrópu árin 2009-2012. Og hann var í raun nýhættur með FC Bayern þegar þeir tóku svo við af Barcelona frá 2012. Samt sem áður spilaði hann gífurlegan þátt í árangri og uppbyggingu þessara liða.

Nú er ég alls ekki að eigna Van Gaal heiðurinn að árangri þessara liða undanfarin ár en það er engin tilviljun að þau hafi verið svona sigursæl. Það er enn minni tilviljun að Pep Guardiola hafi þjálfað Barcelona og sé núverandi þjálfari FC Bayern. Hann hefur sjálfur sagt að Van Gaal sé einn hans stærsti áhrifavaldur hans í þjálfun og að hann hafi lært mikið af honum á sínum tíma hjá Barcelona.

The Telegraph birti ítarlega grein um Van Gaal og feril hans sem kallaðist „The Van Gaal dossier“ og ég hef tekið mér það bessaleyfi að taka lítinn hluta beint úr greininni og birta hér þegar kemur að ráðningu Van Gaals hjá FC Bayern; „What Bayern were lacking when van Gaal arrived was an idea – an ideology around which the entire club, from first team to academy, could mould itself. The foundations for the success enjoyed by Heynckes and Guardiola were laid by van Gaal … Guardiola is generally thought to have introduced the Barcelona way to Bayern, but who was really imitating who?”

Þetta virðist einnig vera að eiga sér stað hjá Manchester United í dag. U21 og U18 ára lið félagsins spila með sömu hugmyndafræði og aðalliðið, planið virðist ekki að vinna alla leiki heldur að búa til og móta leikmenn að þeirri hugmyndafræði sem aðalliðið aðhyllist. Það er þó líklega farið inn í alla leiki til að vinna þá, þetta er jú ennþá Manchester United.

Það má í raun segja að Van Gaal sé að umrita DNA félagsins og langtíma áætlun hans, og félagsins í heild hlýtur að vera sú von að félagið geti náð sama árangri og Barcelona og FC Bayern hafa gert á undanförnum árum. Ef það tekst þá verður erfitt að horfa framhjá Van Gaal þegar færustu þjálfarar sögunnar eru ræddir. Félagið mun þó þurfa að velja eftirmann hans vandlega, það vill ekki falla ofan í sömu gryfju og það gerði þegar það réð David Moyes

Það virðist þó sem Ryan Giggs, sigursælasti kantmaður sögunnar (leyfi ég mér að fullyrða) eigi að halda arfleið og hugmyndafræði Van Gaal á lofti þegar hann hættir. Ekki nema Pep sjálfur mæti enn og aftur þangað sem Van Gaal hefur verið ... við verðum að bíða og sjá.

Runólfur Trausti Þórhallsson

Heimild 1 http://www.dailystar.co.uk/sport/football/399887/Rio-Ferdinand-reveals-all-on-David-Moyes-failings-at-Man-United-boss
Heimild 2 : http://s.telegraph.co.uk/graphics/projects/the-van-gaal-dossier/index.html
Heimild 3 : https://twitter.com/ManUtd/status/503069387293990912
Heimild 4 : http://www.theguardian.com/football/2012/oct/22/manchester-united-alex-ferguson-diamond-formation
Heimild 5 : http://www.theguardian.com/sport/blog/2013/jan/17/football-tactics-pep-guardiola

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner