18.09.16 - 14:08
Elvar Geir Magnússon
Rúnar Kristins rekinn frá Lilleström (Staðfest)

Rúnar Kristinsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Rúnar Kristinsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Lilleström hefur sent frá sér yfirlýsingu þess efnis að Rúnar Kristinsson sé hættur sem þjálfari liðsins.
„Að skipta um þjálfara er okkar síðasta úrræði. Við vildum reyna allar leiðir fyrst. Þær leiðir skiluðu ekki þeim árangri sem við vonuðumst eftir og því miður þurftum við að slíta okkar sambandi við Kristinsson,\" segir stjórnarformaðurinn Owe Halvorsen.
„Ég skil það að félagið þurfi að bregðast við þessum aðstæðum. Viðskilnaðurinn er í góðu. Ég vil þakka starfsfólkinu og stuðningsmönnunum fyrir samvinnuna,\" segir Rúnar á heimasíðu Lilleström.
Rúnar var á sínu öðru tímabili sem þjálfari Lilleström en liðið tapaði fyrir Tromsö í gær í leik þar sem sigurmarkið kom í lok leiksins.
Lilleström er í 13. sæti með 23 stig, jafnmörg stig og Álasund sem er í 14. sæti en það er umspilssæti um fall. Lilleström á sex leiki eftir í norsku úrvalsdeildinni.