Fotbolti.net
18.09.19 - 11:00
Magnús Már Einarsson

Ronaldo vill komast upp fyrir Messi

Ronaldo vill komast upp fyrir Messi
Canon

Mynd: Getty Images

Cristiano Ronaldo segist vonast til að verða oftar valinn bestur í heimi og enda ferilinn með fleiri gullbolta en Lionel Messi. Báðir hafa þeir fimm sinnum verið valdir bestir í heimi.
„Ég vil vinna fleiri og ég tel að ég verðskuldi það," sagði Ronaldo í viðtali við Piers Morgan.

„Messi er stórkostlegur náungi og frábær leikmaður. Hann er kominn í sögubækurnar í fótboltanum en ég verð að ná sex, sjö eða átta gullboltum til að enda fyrir ofan hann."

„Samband okkar er þannig að við erum ekki vinir en við höfum deilt þessu sviði í fimmtán ár."

„Ég á í góðu sambandi við hann. Ég veit að hann hefur náð að ýta mér í að verða betri leikmaður og ég hef náð að ýta honum í að verða betri leikmaður."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.