Fotbolti.net
18.09.20 - 06:00
Aksentije Milisic

Flick sendir Liverpool hamingjuóskir: Frábær leikmaður og manneskja

Flick sendir Liverpool hamingjuóskir: Frábær leikmaður og manneskja
Canon

Mynd: Getty Images

Hans-Dieter Flick, þjálfari Bayern Munchen, hefur óskað Liverpool til hamingju með að vera fá Thiago Alacantara frá Bayern.
Thiago hefur verið orðaður við Liverpool í allt sumar og í dag brutust þær fréttir út að Bayern hefur samþykkt tilboð Liverpool í leikmanninn. Thiago mun skrifa undir fjögurra ára samning við Liverpool.

„Thiago er frábær leikmaður og var mjög mikilvægur fyrir okkur. Ég og aðrir starfsmenn liðsins nutum þess að vinna með honum," sagði Flick.

„Thiago gaf okkur alls kyns möguleika og gerði okkur að ófyrirsjáanlegu liði. Hann fann lausn á hlutum á þann hátt sem þú bjóst ekki við."

„Ég óska Liverpool til hamingju með að fá frábæran leikmann og þá sérstaklega frábæra manneskju."

Framundan er læknisskoðun hjá Thiago áður en hann félagsskiptin verða staðfest.
Flick sendir Liverpool hamingjuóskir: Frábær leikmaður og manneskja
Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.