Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 18. september 2020 15:49
Magnús Már Einarsson
Rúnar Alex mættur á æfingasvæði Arsenal
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Rúnar Alex Rúnarsson er mættur á æfingasvæði Arsenal til að ganga frá félagaskiptum til félagsins.

Arsenal er að kaupa Rúnar Alex frá franska félaginu Dijon á 1,6 milljón punda.

Rúnar Alex fór í læknisskoðun í Frakklandi í gær og er nú mættur á æfingasvæðið tl að ganga frá pappírsmálum.

Hann heilsar á sama tíma upp á nýja liðsfélaga sína en Arsenal er á lokaæfingu sinni fyrir leikinn við West Ham á morgun.

Hinn 25 ára gamli Rúnar er uppalinn hjá KR en hann gekk í raðir Nordsjælland í Danmörku árið 2014. Þaðan fór hann til Dijon sumarið 2018.

Hjá Nordsjælland var markmannsþjálfari hans Inaki Cana en Mikel Arteta fékk hann á síðasta tímabili inn í þjálfarateymi sitt hjá Arsenal.

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner