Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   lau 18. september 2021 06:00
Fótbolti.net
Fjölskyldufjör fyrir leik Leiknis og Keflavíkur á morgun
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Nýliðar Leiknis í Pepsi Max-deildinni leika síðasta heimaleik sinn í sumar á Domusnova-vellinum klukkan 14 á morgun.

Hinir nýliðarnir í deildinni, Keflvíkingar, mæta í heimsókn.

Fyrir leikinn verður sérstök fjölskylduhátíð í Breiðholtinu þar sem grillaðar verða pylsur og krakkarnir geta leikið sér í hoppuköstulum.

Fjölskyldufjörið hefst klukkan 13.

Leiknismenn hafa náð sínum besta árangri í sögu félagsins og það má búast við góðum anda í Breiðholtinu á morgun.



Athugasemdir
banner
banner