Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 18. september 2021 11:30
Aksentije Milisic
Liverpool í samningsviðræðum við Keita
Mynd: Getty Images
Liverpool er sagt vera í viðræðum við Naby Keita um nýjan samning en þessi 25 ára gamli leikmaður á tvö ár eftir af samingi sínum við félagið.

Keita kom til liðsins frá RB Leipzig fyrir 52 milljónir punda árið 2017 en honum hefur gengið illa að brjóta sér leið inn í byrjunarliðið hjá ógnarsterku liði Liverpool.

Liverpool vill ekki gera sömu mistök og með Georgino Wijnaldum en hann fór frítt frá félaginu. Wijnaldum og Liverpool náðu ekki samkomulagi og því rann samningur hans út og hann hélt á leið til PSG.

Keita hefur verið mikið meiddur á tíma sínum hjá Liverpool og þá hefur honum eins og áður segir, gengið illa að sanna sig hjá félaginu enn sem komið er.

Hann var orðaður við Atletico Madrid í sumar en ekkert varð úr þeim skiptum. Nú vill Liverpool framlengja samning Keita.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner