Fotbolti.net
18.09.21 - 18:05
Brynjar Ingi Erluson

Sjáðu mörkin: Villa gerði þrjú mörk á níu mínútum

Lucas Digne skallaði boltann í eigið net

Lucas Digne skallaði boltann í eigið net

Canon

Mynd: EPA

Aston Villa er að vinna Everton, 3-0, á Villa Park þegar þetta er skrifað en liðið skoraði þrjú mörk á níu mínútum.
Staðan var markalaus í hálfleik en á 66. mínútu dró til tíðinda. Villa sótti hratt, Douglas Luiz lagði boltann fyrir Matty Cash sem mætti á ferðinni, keyrði inn í teig og afgreiddi boltann snyrtilega efst í nærhornið.

Þremur mínútum síðar kom annað mark Villa. Leon Bailey tók hornspyrnu sem Asmir Begovic virtist vera með í teskeið en boltinn fór af hausnum á Lucas Digne og í netið. Á 75. mínútu gerði Bailey svo þriðja markið.

Hægt er að sjá mörkin hér fyrir neðan.

Markið hjá Matty Cash

Sjálfsmarkið hjá Digne

Markið hjá Bailey
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.