18.10.16 - 17:29
Jóhann Ingi Hafþórsson
Ásgeir Sigurgeirs gerir tveggja ára samning við KA (Staðfest)

Ásgeir Sigurgeirs var efnilegasti leikmaður Inkasso í ár.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ásgeir Sigurgeirsson, efnilegasti leikmaður Inkasso-deildarinnar í ár, er búinn að skrifa undir tveggja ára samning við KA.
Hann spilaði með KA á nýliðinni leiktíð en hann var þá á lánssamning frá norska félaginu Stabæk.
Ásgeir er laus allra mála hjá Stabæk og er hann því alfarið orðinn leikmaður KA en félagið ætlar sér stóra hluti í Pepsi-deildinni á næsta ári eftir að hafa unnið Inkasso-deildina í ár.
Hann skoraði átta mörk í 17 leikjum í deildinni á síðustu leiktíð en Ásgeir er uppalinn á Húsavík og spilaði hann sína fyrstu leiki í meistaraflokk með Völsungi en sóknarmaðurinn var aðeins 15 ára þegar hann spilaði sinn fyrsta leik.
Ásgeir fór til Stabæk árið 2014 en mikil meiðsli settu strik í reikninginn hjá honum og fékk hann aldrei tækifæri með aðalliðinu.
Þjálfarar og fyrirliðar völdu Ásgeir sem efnilegasta leikmann Inkasso-deildarinnar en með því að smella hér getur þú séð viðtal við hann við það tilefni.