Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 18. október 2020 06:00
Victor Pálsson
Maguire: Við verðum að bæta okkur
Mynd: Getty Images
Harry Maguire, fyrirliði Manchester United, segir að sigur liðsins gegn Newcastle í gær hafi verið mjög verðskuldaður.

United fór á kostum í síðari hálfleik í 4-1 sigri en heimamenn í Newcastle komust yfir eftir aðeins tvær mínútur.

Maguire komst sjálfur á blað í leiknum en sigurinn var annar sigur United í deildinni til þessa.

„Ég er ekki á því máli að við höfum svarað almennilega fyrir okkur en það er fyndið að það sé talað um krísu eftir fjóra leiki," sagði Maguire.

„Við höfum tapað tveimur og unnið tvo, það er mikið eftir. Við verðum að bæta okkur. Þegar þú spilar fyrir þetta félag og tapar á heimavelli þá er spurt spurninga."

„Við höfum unnið mikið á æfingum, þetta er frábær hópur og við þurftum að svara fyrir okkur. Það hefði verið sárt að fá eitt stig hérna. Sigurinn var verðskuldaður."

Athugasemdir
banner
banner
banner