Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 18. október 2021 14:16
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ákvörðun Guðlaugs Victors borgaði sig fyrir hann
Guðlaugur Victor Pálsson.
Guðlaugur Victor Pálsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Miðjumaðurinn Guðlaugur Victor Pálsson er í liði vikunnar hjá Kicker í þýsku B-deildinni eftir góða frammistöðu með Schalke 04 síðastliðið föstudagskvöld.

Það var mikil umræða um Guðlaug Victor eftir að hann ákvað að draga sig úr landsliðshópnum fyrir leik gegn Liechtenstein í undankeppni HM.

Hann vildi einbeita sér að félagsliði sínu; Schalke átti leik við Hannover síðasta föstudag.

Guðlaugur Victor lagði upp sigurmarkið í uppbótartíma síðari hálfleiks fyrir pólska varnarmanninn Marcin Kaminski. Það kom glæsileg fyrirgjöf inn í teiginn, sem Guðlaugur skallaði aftur fyrir sig á Kaminski og þaðan í netið.

Það er hægt að segja að ákvörðunin hafi borgað sig fyrir Guðlaug Victor, að draga sig úr landsliðshópnum en það verður fróðlegt að sjá hvort hann verði í næsta hóp. Arnar Þór Viðarsson, landsliðsþjálfari, var ekki sammála ákvörðun hans að draga sig út.

Sjá einnig:
Arnar um Gulla og Jóa: Mikilvægt að traustið og virðingin sé í báðar áttir


Athugasemdir
banner
banner