Fotbolti.net
18.11.16 - 15:40
Magnús Már Einarsson

Hólmfríður Magnúsdóttir í KR (Staðfest)

Hólmfríður í leik með KR árið 2007.

Hólmfríður í leik með KR árið 2007.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
KR hefur fengið góðan liðsstyrk fyrir keppni í Pepsi-deild kvenna næsta sumar en landsliðskonan Hólmfríður Magnúsdóttir hefur samið við uppeldisfélagið sitt á nýjan leik.
Hólmfríður skoraði 109 mörk í 129 leikjum með KR frá 2000 til 2008 áður en hún fór út í atvinnumennsku.

Undanfarin fimm ár hefur Hólmfríður leikið með Avaldsnes í Noregi en liðið endaði í öðru sæti þar í landi í ár. Eftir tímabilið varð ljóst að Hólmfríður myndi fara frá Avaldsnes og nú hefur nú samið við KR.

„Ljóst er að koma Hólmfríðar verður gríðarlega mikill styrkur fyrir kvennaknattspyrnuna hjá félaginu og sýnir að félagið ætlar sér á ný í hóp bestu kvennaliða á Íslandi. Hólmfríður er frábær knattspyrnukona og er mikil tilhlökkun innan félagsins að fá hana aftur á heimaslóðir,\" segir á heimasíðu KR.

KR bjargaði sér frá falli á ævintýralegan hátt í lokaumferð Pepsi-deildarinnar í sumar. Félagið hefur nú blásið í herlúðra fyrir næsta tímabil en auk þess að semja við Hólmfríði þá komu Katrín Ómarsdóttir og Þórunn Helga Jónsdóttir til félagsins í síðustu viku eftir að hafa leikið úti í atvinnumennsku.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.