Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 18. nóvember 2020 18:21
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Wembley
Byrjunarlið Íslands: Ögmundur byrjar í markinu
Icelandair
Ögmundur Kristinsson byrjar í markinu hjá Íslandi á Wembley.
Ögmundur Kristinsson byrjar í markinu hjá Íslandi á Wembley.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Byrjunarlið Íslands fyrir leikinn gegn Englandi í kvöld er klárt. Áfram er stillt upp í 5-3-2.

Ögmundur Kristinsson byrjar í markinu á Wembley og fer Rúnar Alex Rúnarsson á bekkinn. Hjörtur Hermannsson og Kári Árnason koma inn í þriggja manna varnalínu og byrja með Sverri Inga Ingasyni. Kári er fyrirliði í kvöld.

Rúnar Már Sigurjónsson og Guðlaugur Victor Pálsson koma þá inn á miðjuna. Birkir Bjarnason byrjar þriðja leikinn á stuttum tíma.

Leikurinn er í beinni textalýsingu á Fótbolta.net. Smelltu hér til að fara í textalýsinguna.

Byrjunarlið Íslands:
13. Ögmundur Kristinsson (m)
2. Birkir Már Sævarsson
4. Guðlaugur Victor Pálsson
5. Sverrir Ingi Ingason
8. Birkir Bjarnason
14 Kári Árnason
15 Hjörtur Hermannsson
16. Rúnar Már Sigurjónsson
20. Albert Guðmundsson
22. Jón Daði Böðvarsson
23. Ari Freyr Skúlason


Athugasemdir
banner
banner