Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   þri 18. desember 2018 16:36
Magnús Már Einarsson
Lauren Wade í Þrótt R. (Staðfest)
Lauren Wade.
Lauren Wade.
Mynd: Þróttur R.
Þróttur hefur fengið góðan liðsstyrk fyrir komandi baráttu í Inkasso deild kvenna en gengið hefur verið frá samningi við Lauren Wade og mun hún leika með liðinu næsta tímabil.

Lauren er sóknarmaður sem kemur til Þróttar frá bandarísku háskólaliði, Carson Newman, þar sem hún skoraði 38 mörk í 40 leikjum á síðasta tímabili og var markahæst í þeirri deild.

Hún lék jafnframt í stuttan tíma með UMEA í Svíþjóð og á að baki 19 A landsleiki fyrir Norður – Írland.

Þá hafa Þróttur og Capelli Sports hafa undirritað samning um samstarf varðandi búninga og búnað fyrir alla aldursflokka í öllum deildum Þróttar. Samningurinn, sem jafnframt nær til Rey Cup, er til 5 ára og gildir því út árið 2023.

Um er að ræða umfangsmesta búningasamning sem Þróttur hefur gert en félagið mun nú hætta að leika í Hummel búningum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner