Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 18. desember 2018 10:44
Magnús Már Einarsson
Pogba birti mynd eftir Mourinho frétt - Eyddi henni strax
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho, stjóri Manchester United, var rekinn frá félaginu í morgun eftir erfitt tímabil.

Samband Mourinho og miðjumannsins Paul Pogba hefur verið mikið til umfjöllunar á tímabilinu en Frakkinn hefur verið á varamannabekknum í síðustu leikjum United.

Athygli vakti að Pogba birti myndir á samfélagsmiðlum eftir að fréttirnar með Mourinho komu út.

Þar er Pogba ánægður á svip og biður aðdáendur um að koma með hugmyndir að texta við myndina.

Pogba virðist eitthvað hafa séð eftir þessu uppátæki því nokkrum mínútum eftir að myndin birtist var búið að eyða henni af öllum samfélagsmiðlum hans.

Hér að neðan má sjá myndina.
Athugasemdir
banner
banner