18.12.19 - 12:37
Hafliði Breiðfjörð
Hafþór Péturs semur við Þrótt R. (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Varnarmaðurinn Hafþór Pétursson hefur skrifað undir tveggja ára samning við Þrótt R.
Hafþór gekk til liðs við Þrótt síðastliðið sumar og var þá á láni frá ÍA en hann lék 18 leiki á síðasta tímabili í deild og bikar.
Hinn 22 ára gamli Hafþór missti af síðustu leikjunum á síðasta tímabili vegna meiðsla.

Hann á að baki tvo landsleiki með yngri landsliðum auk þess að hafa leikið 16 leiki í efstu deild með liði ÍA árin 2016 og 2017.
Gunnar Guðmundsson tók við þjálfun Þróttar af Þórhalli Siggeirssyni eftir síðasta tímabil.