18.12.19 - 10:25
Magnús Már Einarsson
Mary Alice Vignola í Þrótt (Staðfest)

Þróttur fær liðsstyrk.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þróttur fær liðsstyrk.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Nýliðar Þróttar R. í Pepsi Max-deild kvenna hafa samið við Mary Alice Vignola fyrir næsta tímabil.
Mary er 21 árs gömul en hún kemur til félagsins frá Tennessee.
Mary Alice leikur sem bakvörður eða vængmaður og var markahæst í liði sínu í bandaríska háskólaboltanum síðasta keppnistímabil þar sem hún skoraði 9 mörk í 18 leikjum.
Þróttur vann Inkasso-deildina á síðasta tímabili og spilar því í Pepsi Max-deildinni næsta sumar.

Mary Alice Vignola hefur skrifað undir samning við Þrótt sem gildir út tímabilið 2020 en þessi 21 árs gamli leikmaður kemur til félagsins frá Tennessee. Við bjóðum hana velkomna í hjartað í Reykjavík og hlökkum til komandi tímabils í Pepsi Max deildinni. #Lifi pic.twitter.com/FnbmI6e2ov
— Þróttur (@throtturrvk) December 18, 2019