Fotbolti.net
19.01.17 - 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Nsue frá Middlesbrough til Birmingham (Staðfest)

Nsue er farinn til Birmingham.

Nsue er farinn til Birmingham.

Canon

Mynd: Getty Images

Birmingham City, sem leikur í ensku Championship-deildinni, hefur gengið frá kaupum á kantmanninum Emiliano Nsue, en hann kemur til liðsins frá Middlesbrough.

Kaupverðið er ekki gefið upp, en leikmaðurinn skrifaði undir þiggja- og hálfs árs samning við Birmingham City.
Nsue gekk til liðs við Boro frá spænska liðinu Mallorca árið 2014, en hann hefur ekki spilað með liðinu síðan í september.

Hann skoraði þrisvar sinnum í 40 leikjum á síðasta leiktímabili þegar Middlesbrough vann sér inn sæti í ensku úrvalsdeildinni á nýjan leik.

Nsue, sem er 27 ára gamall, er þriðji leikmaðurinn sem Gianfranco Zola, stjóri Birmingham, fær í þessum janúarglugga. Áður hafði hann fengið þá Lukas Jutkiewicz and Craig Gardner.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.