Fotbolti.net
19.01.17 - 10:23
Magnús Már Einarsson

Sverrir Ingi til Granada (Staðfest)

Sverrir fyrir æfingu hjá Granada í gær.

Sverrir fyrir æfingu hjá Granada í gær.

Canon

Mynd: Getty Images

Spænska félagið Granada hefur keypt íslenska landsliðsmanninn Sverri Inga Ingason frá Lokeren. Sverrir skrifaði undir samning sem gildir til sumarsins 2020 en þetta var staðfest nú rétt í þessu. Kaupverðið var ekki gefið upp en talið er að að sé á bilinu 1,5-2 milljónir evra.
Hinn 23 ára gamli Sverrir er uppalinn hjá Breiðabliki kom til belgíska félagsins Lokeren frá Viking í Noregi fyrir tveimur árum. Sverrir hefur staðið sig mjög vel í Belgíu og vakið verðskuldaða athygli.

Granada er í næstneðsta sæti í La Liga, sex stigum frá öruggu sæti. Liðið hefur fengið 39 mörk á sig í vetur eða flest allra liða í deildinni og einungis unnið einn leik, gegn liði Sevilla sem er í 2. sæti. Sverrir á að reyna að hjálpa Granada að snúa þessu slaka gengi við.

Granada hefur leikið í efstu deild á Spáni síðan árið 2011 en liðið hefur nánast alltaf verið í fallbaráttu undanfarin ár. Í dag eru 13 lánsmenn á mála hjá Granada en þeir koma meðal annars frá liðum eins og Barcelona, Manchester United, Chelsea og Roma.

Andreas Pereira er á láni hjá Granada frá Manchester United en markvörður liðsins er Guillermo Ochoa sem sló í gegn með Mexíkó á HM 2014. Ochoa er í láni frá Malaga.

Sverrir hefur skorað þrjú mörk í níu leikjum með íslenska landsliðinu en hann kom við sögu í tveimur leikjum á EM í Frakklandi í fyrrasumar.

Granada mætir Espanyol á laugardaginn en möguleiki er á að Sverrir spili sinn fyrsta leik þar.

18 umferðir eru búnar á Spáni og því á Granada eftir að mæta öllum liðunum einu sinni sem og Espanyol tvívegis. Hér að neðan má sjá dagsetningar á leikjum liðsins gegn toppliðunum en talsvert langt er í þá leiki. .

Leikir Granada gegn toppliðunum (Gætu færst um 1 dag):
12. mars Granada - Atletico Madrid
2. apríl Granada - Barcelona
23. apríl Sevilla - Granada
7. maí Granada - Real Madrid

Sjá einnig:
„Granada hefur verið í miklum vandræðum í vörninni\"

COMUNICADO | @SverrirIngi firma como jugador del #GranadaCF hasta 2020 ▶️ https://t.co/QOm2UNzVBv #IngasonNazarí pic.twitter.com/5bWYIB154a

— Granada C.F. (@GranadaCdeF) January 19, 2017

Sverrir á landsliðsæfingu.

Sverrir á landsliðsæfingu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Daníel Rúnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.