Fotbolti.net
19.01.19 - 14:46
Arnar Helgi Magnússon

Njörður Þórhallsson í Þrótt R. (Staðfest)

Njörður í leik með KV árið 2016.

Njörður í leik með KV árið 2016.

Canon

Mynd: Fótbolti.net: Eyjólfur Garðarsson

Njörður Þórhallsson er genginn til liðs við Þrótt R. en hann kemur til félagsins frá KV.
Njörður er uppalinn hjá Þrótti R. en hann hefur spilað síðustu fjögur tímabil með KV. Hann getur leyst stöðu varnar- og miðjumanns.

Hann á að baki 82 meistaraflokksleiki og hefur hann skorað í þeim 11 mörk.

Þróttur hefur fengið til sín nokkra leikmenn á undanförnum vikum en liðið hafnaði í 5. sæti Inkasso deildarinnar.

Njörður leik 20 leiki á liðnu sumri fyrir KV sem að endaði í 7. sæti 2. deildar.

Njörður var ónotaður varamaður þegar Þróttur tapaði, 1-0 fyrir Fram í Reykjavíkurmótinu í gærkvöldi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.