Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 19. febrúar 2019 07:30
Brynjar Ingi Erluson
Monchi: Erfitt að verja Zaniolo
Nicolo Zaniolo er einn heitasti bitiinn á markaðnum
Nicolo Zaniolo er einn heitasti bitiinn á markaðnum
Mynd: Getty Images
Monchi, yfirmaður knattspyrnumála hjá ítalska félaginu Roma, segir það erfitt að verja Nicolo Zaniolo frá öllu umstangi í fjölmiðlum og samskiptamiðlum.

Zaniolo er aðeins 19 ára gamall en hefur verið í lykilhlutverki í liði Roma eða alveg frá því hann kom í sumar frá Inter.

Margir eru gáttaðir á því að Inter hafi leyft leikmanninum að fara til Roma en hann er talinn einn efnilegasti knattspyrnumaður heims og hefur tekist að sanna það í síðustu leikjum.

Hann skoraði tvö mörk gegn Porto í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópur og þá hefur frammistaða hans í ítölsku deildinni ekki farið framhjá neinum.

Frægð Zaniolo er að reynast honum erfitt en móðir hans er að fanga alla athyglina á samskiptamiðlinum Instagram og hefur hann þurft að biðja hana að hætta að tjá sig þar.

;,Það er ekki auðvelt að verja hann frá öllu þessu og það er mjög eðlilegt. Stundum gerast hlutir sem er ekki hægt að stjórna og við þurfum því að fylgjast náið með honum," sagði hann í lokin.
Athugasemdir
banner
banner
banner