Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   þri 19. febrúar 2019 14:29
Elvar Geir Magnússon
Þórhallur tekur við Þrótti (Staðfest)
Þórhallur Siggeirsson er orðinn aðalþjálfari meistaraflokks í fyrsta sinn.
Þórhallur Siggeirsson er orðinn aðalþjálfari meistaraflokks í fyrsta sinn.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þórhallur Siggeirsson hefur verið ráðinn þjálfari Þróttar í Inkasso-deildinni. Þórhallur er fæddur 1987 og er næst yngsti þjálfarinn í efstu tveimur deildunum, Gregg Ryder (1988) þjálfari Þórs er yngri.

Þórhallur var aðstoðarþjálfari Gunnlaugs Jónssonar í fyrra þegar Þróttur hafnaði í 5. sæti Inkasso-deildarinnar.

Gunnlaugur lét af störfum í síðustu viku.

Af heimasíðu Þróttar:
Knattspyrnudeild Þróttar hefur gengið frá ráðningu á Þórhalli Siggeirssyni sem þjálfara meistaraflokks karla og gildir samningurinn til loka keppnistímabils árið 2021. Halldór Geir Heiðarsson hefur samhliða verið ráðinn aðstoðarþjálfari Þórhalls í meistaraflokknum.

Þórhallur, sem var aðstoðarþjálfari Gunnlaugs Jónssonar á síðasta keppnistímabili, er jafnframt yfirþjálfari yngri flokka starfs hjá félaginu og mun halda því starfi áfram.

Þórhallur er með UEFA-A þjálfaragráðu auk þess að vera með M.Sc gráðu í íþróttavísindum og þjálfun frá Háskólanum í Reykjavík og hefur mikla reynslu af þjálfun yngri flokka , hefur þjálfað hjá HK, Val og nú síðast hjá Stjörnunni þar sem hann var yfirþjálfari yngri flokka frá 2014-2017 en þetta er frumraun hans sem aðalþjálfari meistaraflokks.

Halldór Geir, sem hefur verið hluti af þjálfarateymi meistaraflokks og 2.flokks auk þess að vera yfirmaður afreksþjálfunar 11 manna bolta, tekur UEFA-A þjálfaragráðu síðar í vor en hann var áður þjálfari í yngri flokkum Stjörnunnar.

Það er fagnaðarefni fyrir Þrótt að halda áframhaldandi samstarfi við Þórhall og Donna í uppbyggingu knattspyrnunnar hjá félaginu og við styðjum þá til góðra verkefna á komandi tímabilum.

Athugasemdir
banner
banner
banner