Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 19. febrúar 2021 06:00
Aksentije Milisic
Pavard missir af leiknum gegn Lazio
Mynd: Getty Images
Benjamin Pavard, leikmaður Bayern Munchen, mun missa af leik liðsins gegn Lazio í Meistaradeild Evrópu í næstu viku.

Pavard greindist með Covid-19 og mun nú þurfa að vera í einangrun. Hann missir einnig af deildarleik liðsins gegn Eintrach Frankfurt.

Þessi 24 ára gamli bakvörður gæti einnig misst af deildarleik gegn Köln en það fer eftir því hvenær hann nær að hrista veiruna af sér.

Bayern Munchen segir að leikmanninum líður vel og sé án einkenna á meðan hann sætir einangrun.
Athugasemdir
banner
banner
banner