Man Utd ætlar að reka Ten Hag - Hver tekur við? - Tuchel hefur áhuga á starfinu
banner
   þri 19. mars 2019 06:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Fjórir leikmenn til liðs við KM (Staðfest)
Mynd: KM
KM eða Knattspyrnufélagið Miðbær Reykjavík, hefur styrkt sig fyrir komandi átök í 4. deild karla. KM mun leika í B-riðli 4. deildar í sumar.

Leikmennirnir eru þeir David Jaen Ibarra sem kemur frá Spáni, Joaquin Linares Cordoba og Sveinn Máni Jónsson koma frá KR og Bilal Fathi kemur frá ÍR.

Sveinn Máni er fæddur árið 1996 og spilaði síðast með KR í 2. flokki árið 2017. Bilal Fathi er einnig fæddur árið 1996 og lék síðast með ÍR í 2. flokki árið 2015.

Joaquin Linares Cordoba er fæddur árið 1980 og er ekki með leik skráðan fyrir KR. David Jaen Ibarra er fæddur árið 1995.

Joaquin er aðstoðarþjálfari, framkvæmdastjóri, formaður og gjaldkeri KM.
Athugasemdir
banner
banner