Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   fim 19. mars 2020 09:30
Elvar Geir Magnússon
Man Utd tilbúið að selja Pogba í sumar
Paul Pogba.
Paul Pogba.
Mynd: Getty Images
The Sun segir að Manchester United sé tilbúið að selja franska miðjumanninn Paul Pogba í sumar fyrir 100 milljónir punda.

Stöðugar sögusagnir hafa einkennt Pogba og telur Ole Gunnar Solskjær, stjóri United, að best sé fyrir félagið að hann fari og uppbyggingin haldi áfram án hans.

Þessar fréttir munu vekja áhuga Real Madrid, Paris Saint-Germain og Juventus.

Juventus seldi Pogba til United fyrir 89 milljónir punda 2016. Leikmaðurinn hefur alls ekki náð að standa undir væntingum hjá United og hefur mikið verið frá á þessu tímabili vegna meiðsla.

Pogba klæddi sig í treyju Juventus í gær en það var til að sýna Blaise Matuidi, liðsfélaga sínum í franska landsliðinu, stuðning. Matuidi greindist með kórónaveiruna.
Athugasemdir
banner
banner
banner