Fotbolti.net
19.03.26 - 20:20
Ívan Guðjón Baldursson
Jói útherji

Flick: Þið sögðuð að Lewandowski væri búinn

Flick: Þið sögðuð að Lewandowski væri búinn
Canon

Mynd: EPA

Hansi Flick var hress eftir stórsigur Barcelona gegn Newcastle í gærkvöldi.
Hinn 37 ára gamli Robert Lewandowski skoraði tvennu í sigrinum og er kominn með 16 mörk í 36 leikjum á tímabilinu. Hann skoraði ekki í þremur leikjum í röð fyrir stórsigurinn gegn Newcastle.

„Það er gott að hann sé byrjaður að skora aftur, þetta er góður dagur fyrir hann. Hann er einn af bestu framherjum í heimi í svona leikjum. Þið sögðuð að Lewandowski væri búinn, er það ekki? Hann skoraði tvö mörk aftur, í Meistaradeildinni. Hann er ennþá einn af bestu leikmönnum og framherjum heims," sagði Flick. Barcelona spilar við Atlético Madrid í 8-liða úrslitunum og mætir sigurvegarinn annað hvort Arsenal eða Sporting CP í undanúrslitum.

„Við getum ekki hugsað um að vinna Meistaradeildina á þessum tímapunkti, við verðum að taka þetta einn leik í einu. Það eru mjög erfiðir leikir framundan.

„Við erum með mjög ungt lið sem verður sífellt betra og betra með aukinni reynslu. Ég er mjög ánægður eftir þennan seinni hálfleik."


Newcastle og Barcelona skildu jöfn 1-1 í fyrri leiknum og var staðan 3-2 eftir fyrri hálfleikinn á Nývangi. Heimamenn gerðu sér lítið fyrir og skoruðu fjögur mörk í seinni hálfleiknum til að gera út um einvígið.

Flick hættir líklega þegar hann yfirgefur Barcelona
TENGT EFNI

Flick hættir líklega þegar hann yfirgefur Barcelona

Flick: Þið sögðuð að Lewandowski væri búinn
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.