Fotbolti.net
19.04.21 - 20:56
Ívan Guðjón Baldursson

England: Leeds náði jafntefli gegn Liverpool

England: Leeds náði jafntefli gegn Liverpool
Canon

Mynd: Getty Images

Leeds 1 - 1 Liverpool
0-1 Sadio Mane ('31)
1-1 Diego Llorente ('87)
Liverpool átti betri fyrri hálfleik og verðskuldaði að leiða í leikhlé er liðið heimsótti Leeds United á Elland Road í afar umtöluðum leik.

Sadio Mane skoraði á 31. mínútu eftir fallega sókn en seinni hálfleikurinn var talsvert opnari.

Bæði lið fengu frábær færi í síðari hálfleik en inn vildi boltinn ekki. Patrick Bamford komst nálægt því að jafna fyrir Leeds en skot hans fór í slána.

Það var gríðarleg spenna undir lokin og settu lærisveinar Marcelo Bielsa mikla pressu á Englandsmeistarana. Pressan skilaði sér með jöfnunarmarki á 87. mínútu. Diego Llorente skoraði þá með skalla eftir hornspyrnu Jack Harrison.

Bæði lið reyndu að sækja sigurinn en inn vildi boltinn ekki. Alex Oxlade-Chamberlain fékk flott færi í uppbótartíma en átti slakt skot sem var varið.

Lokatölur urðu 1-1 og er Liverpool í sjötta sæti, tveimur stigum eftir West Ham í Meistaradeildarsæti. Leeds er í tíunda sæti, átta stigum frá Evrópusæti.
England: Leeds náði jafntefli gegn Liverpool
Canon

Mynd: Getty Images

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal10+1027
2Man City10+821
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Everton10+216
6Liverpool9+215
7Brentford9+714
8Leeds10+214
9Bournemouth9+112
10Tottenham10-112
11Aston Villa9-312
12Newcastle10-312
13Hull City10011
14Ipswich Town9-411
15Fulham10-210
16Nott. Forest10-49
17Coventry10-99
18Man Utd9-57
19Crystal Palace9-127
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.