Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mán 19. apríl 2021 06:00
Aksentije Milisic
Hazard verður með gegn Chelsea
Mynd: Getty Images
Zinedine Zidane, þjálfari Real Madrid, hefur staðfest það að Belginn Eden Hazard verði klár í slaginn gegn sínu fyrrum félagi Chelsea í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu.

Hazard var aðalmaðurinn hjá Chelsea í mörg ár áður en hann skipti yfir til spænsku risanna fyrir um 18 mánuðum síðan.

Tími Hazard hjá Real hefur hins vegar verið eins og martröð en hann hefur átt við mjög mikil meiðsli að stríða og hefur hann enn ekki náð að koma sér almennilega í gang hjá félaginu.

Þessa stundina er hann meiddur eins og svo oft áður en Zidane var hins vegar með jákvæðar fréttir af Hazard í dag.

„Honum líður betur og hann er tilbúinn. Honum langar mjög mikið að koma til baka," sagði Zidane.

Real Madrid lagði Liverpool að velli í 8-liða úrslitunum á meðan Chelsea vann Porto.

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner