19.04.22 - 11:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
HK fær sóknarmann frá Síerra Leóne (Staðfest)

Mynd: Altona Magic

Mynd: Altona Magic

Hassan Jalloh er genginn í raðir HK og mun spila með liðinu í sumar. Hassan hafði æft og spilað með Grindavík áður en hann fór til HK og vann sér inn samning á dögunum.
Síðan hefur verið beðið eftir félagaskiptunum og nú eru þau gengin í gegn.

Hassan er 23 ára sóknarmaður sem fæddur er í Síerra Leóne og er með ástralskan ríkisborgararétt.
Á ferlinum til þessa hefur hann spilað í Ástralíu með sex félögunum. Síðast lék hann með APIA Leichhardt sem er í næst efstu deild.
Hassan er fjórði leikmaðurinn sem HK fær til félagsins í vetur. Fyrir höfðu þeir Teitur Magnússon, Stefán Ingi Sigurðarson og Þorbergur Þór Steinarsson gengið í raðir félagsins.
Sjá einnig:
Æfingaleikir: Hólmar Örn og Aron Jó skoruðu í tapi - HK lagði ungt lið Blika
Fótbolta.net mótið: Leikmaður á reynslu skoraði tvö fyrir Grindavík