Liverpool meðal félaga sem vilja Bowen - Juventus hefur áhuga á Jackson - Ederson orðaður við Man Utd
   sun 19. apríl 2026 15:06
Jóhann Þór Hólmgrímsson
England: Van Dijk tryggði Liverpool hádramatískan sigur
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Liverpool heimsótti Everton í fyrsta grannaslagnum á Hill Dickinson vellinum.

Everton byrjaði leikinn betur en David Moyes var ekki sáttur og vildi fá vítaspyrnu þegar Kiernan Dewsbury-Hall féll eftir viðskipti við Curtis Jones.

Iliman Ndiaye var fyrstur til að koma boltanum í netið eftir tæplega hálftíma leik en markið var dæmt af þar sem Jake O'Brien var rangstæður í aðdragandanum.

Aðeins tveimur mínútum síðar náði Liverpool forystunni. Cody Gakpo átti frábæra stungusendingu inn fyrir vörn Everton á Mohamed Salah sem átti ekki í neinum vandræðum og skoraði framhjá Jordan Pickford.

Everton jafnaði metin snemma í seinni hálfleik þegar Beto skoraði eftir frábæran undirbúning Dewsbury-Hall. Giorgi Mamardashvili, markvörður Liverpool, meiddist í kjölfarið og Freddie Woodman kom inn á í sínum fyrsta deildarleik.

Jarrad Branthwaite þurfti einnig að fara af velli vegna meiðsla og þaað urðu því mikil töf á leiknum og ellefu mínútum var bætt við. Það stefndi í jafntefli en Liverpool fékk hornspyrnu í blálokin og fyrirliðinn Virgil van Dijk skoraði og tryggði Liverpool dramatískan sigur.

Liverpool er í 5. sæti með 55 stig, sjö stigum á undan Chelsea, í baráttunni um Meistaradeildarsæti. Everton er í 10. sæti með 47 stig.

Morgan Gibbs-White var hetja Nottingham Forest í sigri á Burnley en hann gerði sér lítið fyrir og skoraði þrennu eftir að Zian Flemming hafði komið Burnley yfir. Igor Jesus innsiglaði sigur Forest með marki í uppbótatíma.

Forest er fimm stigum frá fallsæti en Burnley er 12 stigum frá öruggu sæti og er því í erfiðum málum.

Það var markaveisla í Birmingham þegar Aston Villa fékk Sunderland í heimsókn.

Ollie Watkins sá til þess að Aston Villa var með 2-1 forystu í hálfleik og hann lagði upp þriðja markið á Morgan Rogers strax í upphafi seinni hálfleiks.

Sunderland náði að jafna með tveimur mörkum á 86. og 87. mínútu en Tammy Abraham tryggði Aston Villa sigurinn með marki í uppbótatíma.

Aston Villa er í 4. sæti með 58 stig en Sunderland er í 11. sæti með 46 stig.

Nott. Forest 4 - 1 Burnley
0-1 Zian Flemming ('45 )
1-1 Morgan Gibbs-White ('62 )
2-1 Morgan Gibbs-White ('69 )
3-1 Morgan Gibbs-White ('77 )
4-1 Igor Jesus ('90 )

Everton 1 - 2 Liverpool
0-1 Mohamed Salah ('29 )
1-1 Beto ('54 )
1-2 Virgil van Dijk ('90 )

Aston Villa 4 - 3 Sunderland
1-0 Ollie Watkins ('2 )
1-1 Chris Rigg ('9 )
2-1 Ollie Watkins ('36 )
3-1 Morgan Rogers ('46 )
3-2 Trai Hume ('86 )
3-3 Wilson Isidor ('87 )
4-3 Tammy Abraham ('90 )
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 36 24 7 5 68 26 +42 79
2 Man City 35 22 8 5 72 32 +40 74
3 Man Utd 36 18 11 7 63 48 +15 65
4 Liverpool 36 17 8 11 60 48 +12 59
5 Aston Villa 36 17 8 11 50 46 +4 59
6 Bournemouth 36 13 16 7 56 52 +4 55
7 Brighton 36 14 11 11 52 42 +10 53
8 Brentford 36 14 9 13 52 49 +3 51
9 Chelsea 36 13 10 13 55 49 +6 49
10 Everton 36 13 10 13 46 46 0 49
11 Fulham 36 14 6 16 44 50 -6 48
12 Sunderland 36 12 12 12 37 46 -9 48
13 Newcastle 36 13 7 16 50 52 -2 46
14 Leeds 36 10 14 12 48 53 -5 44
15 Crystal Palace 35 11 11 13 38 44 -6 44
16 Nott. Forest 36 11 10 15 45 47 -2 43
17 Tottenham 36 9 11 16 46 55 -9 38
18 West Ham 36 9 9 18 42 62 -20 36
19 Burnley 36 4 9 23 37 73 -36 21
20 Wolves 36 3 9 24 25 66 -41 18
Slapp