Viktor Bjarki Daðason skoraði fyrsta deildarmark sitt með FCK er hann innsiglaði 4-1 sigur liðsins á Vejle í kvöld.
Viktor Bjarki, sem hefur farið hamförum með FCK í Meistaradeildinni á þessari leiktíð, hafði beðið lengi eftir fyrsta deildarmarkinu.
Þessi 17 ára gamli framherji var að spila sinn þrettánda deildarleik og lengi beðið eftir þessu augnabliki. Það kom á 88. mínútu, rúmum tuttugu mínútum eftir að hann kom inn á sem varamaður.
Rúnar Alex Rúnarsson sat allan tímann á bekknum hjá FCK sem er í efsta sæti neðri hlutans með 38 stig.
Viðari Ari Jónsson átti stoðsendingu í þriðja marki Ham/Kam sem vann sannfærandi 4-0 sigur á KFUM Oslo í norsku úrvalsdeildinni. Ham/Kam er með sex stig eftir fjóra leiki.
Annar fyrrum Fjölnismaður, Júlíus Mar Júlíusson, lék þá allan leikinn í 2-0 sigri Kristiansund á Fredrikstad. Hannar Snær Magnússon sat allan tímann á bekknum hjá Kristiansunnd sem er með sex stig.
Hinrik Harðarson kom inn af bekknum á lokamínútunum í 2-2 jafntefli Odd gegn Stabæk í norsku B-deildinni. Hinrik var að leika annan leik sinn á tímabilinu, en Odd er með 7 stig í 3. sæti.
Willum Þór Willumsson og félagar í NEC Nijmegen fengu stóran skell í úrslitum hollenska bikarsins, en liðið tapaði 5-1 fyrir AZ Alkmaar.
Blikinn kom inn af bekknum í hálfleik en spilað var á De Kuip, heimavelli Feyenoord. Svekkjandi fyrir Willum og hans menn sem hafa staðið sig vel á tímabilinu, en liðið er í 3. sæti deildarinnar með 54 stig og að öllum líkindum á leið í Evrópukeppni á næstu leiktíð.
Sverrir Ingi Ingason var í vörninni hjá Panathiniakos sem tapaði grannaslagnum gegn Olympiakos, 2-0, i meistarariðli grísku úrvalsdeildarinnar.
Klaufaleg sending samherja hans, Tin Jedvaj, til baka kom Olympiakos yfir áður en Rodinei gerði út um leikinn undir lok hálfleiksins. Panathinaikos er í neðsta sæti riðilsins með 50 stig.




