Sergio Aguero, fyrrum leikmaður Atlético Madríd og Barcelona, ráðleggur samlanda sínum, Julian Alvarez, að velja Barcelona ef hann ákveður að fara frá Atlético í sumar.
Alvarez verður einn eftirsóttasti biti sumargluggans eftir frábæran tíma hjá Atlético.
Hann kom til félagsins frá Manchester City fyrir tveimur árum og síðan þá skorað 47 mörk í 103 leikjum.
Aguero, sem er einn besti framherji í sögu ensku og spænsku deildarinnar, segir að Alvarez ætti alltaf að velja Barcelona, en hann hefur einnig verið sterklega orðaður við Mikel Arteta og félaga í Arsenal.
„Julian væri góð kaup fyrir hvaða félag sem er í dag. Ef við tölum um Barcelona þá veltur það allt á því hvort honum líst vel á það, því það eru alltaf tvær hliðar og það er hlið leikmannsins og síðan félagsins. Ef hlutirnir ganga vel þá mun hann vinna Meistaradeildina með Barcelona.“
„Það er mjög erfitt fyrir leikmenn að vera þar og mjög flókið, en ef Barcelona er að horfa á hann og honum gengur vel þá hentar þetta fullkomlega. Hann elskar fótbolta og er með kost sem ekki margir framherjar hafa og það er að hann er duglegur að sinna varnarinnu. Hann er allur pakkinn,“ sagði Aguero.



