Mourinho orðaður við Real Madrid - Curtis Jones til Aston Villa?
   sun 19. apríl 2026 16:42
Jóhann Þór Hólmgrímsson
„Þetta er algjörlega glæpsamlegt"
Mynd: EPA
Micah Richards, sérfræðingur á Sky Sports og fyrrum leikmaður Man City, var alls ekki sáttur með sína menn í fyrri hálfleiknum gegn Arsenal.

City komst yfir með glæsilegu einstaklingsframtaki Rayan Cherki en Kai Havertz jafnaði metin strax í kjölfarið eftir skelfileg mistök Gianluigi Donnarumma.

„Þetta er algjörlega glæpsamlegt, að senda aftur á markvörðinn eftir að hafa komist yfir, negldu þessu bara fram. Það er það eina sem þú þarft að gera," sagði Richards.

„Miðað við reynsluna sem Donnarumma er með, hefur m.a. unnið Meistaradeildina með PSG, þá var fólk að tala um að hann væri ekki góður með boltann á fótunum, þetta er það sem fólk var að tala um."

Seinni hálfleikur er nýhafinn og þegar þetta er skrifað er staðan enn 1-1.
Slapp