sun 19. maí 2019 07:30
Ívan Guðjón Baldursson
Fertugur Pizarro að skrifa undir nýjan samning
Mynd: Getty Images
Hinn fertugi Claudio Pizarro mun skrifa undir nýjan samning við Werder Bremen á næstu dögum. Hann ætlar að taka eitt ár í viðbót með félaginu, sem endaði í 8. sæti þýsku deildarinnar.

Þetta staðfesti Frank Baumann, yfirmaður íþróttamála hjá Werder Bremen í viðtali eftir 2-1 sigur á RB Leipzig í lokaumferð þýska boltans í gær.

„Við höfum komist að samkomulagi við Claudio og mun hann skrifa undir samning á næstu dögum," sagði Baumann. „Hann mun halda áfram að leika sama hlutverk. Við munum nýta reynsluna hans til að bæta aðra leikmenn."

Pizarro verður 41 árs í október en kom við í 28 leikjum hjá Bremen á tímabilinu og skoraði 6 mörk. Í heildina á hann 766 leiki að baki á ferlinum, 626 þeirra fyrir FC Bayern og Werder Bremen.

Hann gekk í raðir Bremen í fyrra og var það í fimmta sinn á ferlinum sem hann skrifaði undir samning við félagið.
Athugasemdir
banner
banner
banner