19.06.17 - 17:31
Elvar Geir Magnússon
Everton fær ungan hollenskan varnarmann (Staðfest)

Ronald Koeman, stjóri Everton.

Mynd: Getty Images

Ronald Koeman, stjóri Everton.

Mynd: Getty Images
Everton hefur fengið til sín hollenska U18 landsliðsmanninn Nathangelo Markelo.
Markelo kemur frá hollenska B-deildarliðinu FC Volendam en hann getur spilað sem miðvörður eða hægri bakvörður.
Markelo kemur frá hollenska B-deildarliðinu FC Volendam en hann getur spilað sem miðvörður eða hægri bakvörður.
Markelo skrifaði undir þriggja ára samning við Everton en fyrst um sinn verður hann með varaliði félagsins.
„Þetta er gott tækifæri fyrir mig og ég kann strax vel við mig hér. Um leið og ég heyrði af áhuga Everton vildi ég koma. Hér ætla ég að bæta mig sem leikmaður,\" segir Markelo.
„Þetta er gott tækifæri fyrir mig og ég kann strax vel við mig hér. Um leið og ég heyrði af áhuga Everton vildi ég koma. Hér ætla ég að bæta mig sem leikmaður,\" segir Markelo.
🔵 | Welcome to #EFC, Nathangelo Markelo! Netherlands U18 international will link up with David Unsworth’s #EFCU23s: https://t.co/0LNWmDZwJN pic.twitter.com/bFmTfSr4SX
— Everton (@Everton) June 19, 2017
