Fotbolti.net
19.06.25 - 16:36
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Byrjunarlið ÍBV og Vals: Tómas Bent í liði gestanna - Fimm breytingar hjá Láka

Byrjunarlið ÍBV og Vals: Tómas Bent í liði gestanna - Fimm breytingar hjá Láka
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mjólkurbikarinn
Klukkan 17:30 hefst leikur ÍBV og Vals á Þórsvelli í 8-liða úrslitum Mjólkurbikarsins. Vestri og Stjarnan komust áfram í undanúrslitin í gær og síðasti leikur 8-liða úrslitanna fer svo fram í kvöld þegar Afturelding fær Fram í heimsókn.

ÍBV sló út KR í 16-liða úrslitunum og Valur lagði Þrótt að velli. Bæði lið töpuðu í síðustu umferð í deildinni, Valur gegn Stjörnunni á laugardag og ÍBV tapaði gegn Breiðabliki á sunnudag.
Bikar Baddi spáir í 8-liða úrslitin - Vítakeppni fyrir vestan
TENGT EFNI

Bikar Baddi spáir í 8-liða úrslitin - Vítakeppni fyrir vestan

Lestu um leikinn: ÍBV 0 - 1 Valur
Þorlákur Árnason, þjálfari ÍBV, gerir fimm breytingar á sínu liði frá leiknum gegn Breiðablki. Hjörvar Daði, Mattias Edeland, Milan Tomic, Birgir Ómar og Hermann Þór koma inn. Marcel Zapytowski, Nökkvi Már Nökkvason, Arnór Ingi Kristinsson og Jovan Mitrovic taka sér sæti á bekknum en Arnar Breki Gunnarsson er ekki í hópnum.

Srdjan Tufegdzic, þjálfari Vals, gerir tvær breytingar á sínu liði frá leiknum gegn Stjörnunni. Albin Skoglund og Tómas Bent Magnússon koma inn í liðið fyrir þá Orra Hrafn Kjartansson og Lúkas Loga Heimisson sem taka sér sæti á bekknum. Tómas Bent kom til Vals frá ÍBV í vetur og er að byrja sinn fyrsta leik með liðinu eftir meiðsli.

Byrjunarlið ÍBV

  • 31. Hjörvar Daði Arnarsson (m)
  • 2. Sigurður Arnar Magnússon
  • 4. Mattias Edeland
  • 6. Milan Tomic
  • 10. Sverrir Páll Hjaltested
  • 21. Birgir Ómar Hlynsson
  • 24. Hermann Þór Ragnarsson
  • 25. Alex Freyr Hilmarsson (f)
  • 26. Felix Örn Friðriksson
  • 30. Vicente Rafael Valor Martínez
  • 45. Þorlákur Breki Þ. Baxter

Byrjunarlið Valur

  • 1. Frederik August Albrecht Schram (m)
  • 2. Tómas Bent Magnússon
  • 4. Markus Lund Nakkim
  • 6. Bjarni Mark Antonsson
  • 9. Patrick Pedersen
  • 10. Kristinn Freyr Sigurðsson
  • 10. Jónatan Ingi Jónsson
  • 12. Tryggvi Hrafn Haraldsson
  • 14. Albin Skoglund
  • 15. Hólmar Örn Eyjólfsson (f)
  • 20. Orri Sigurður Ómarsson
Hjörvar Daði í marki ÍBV.

Hjörvar Daði í marki ÍBV.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.