Óskar sér eftir því að hafa skotið á félaga sinn - „Einhver minnimáttarkennd"

Mjög góðir félagar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Grindavík/Njarðvík komst áfram.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Grindavík/Njarðvík er nýlið í Bestu deildinni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Framundan hjá Stjörnunni er leikur gegn Fram.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mjög góðir félagar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Grindavík/Njarðvík sigraði í gær Stjörnuna eftir framlengdan leik í 8-liða úrslitum Mjólkurbikarsins. Spilað var í Grindavík og er ljóst að Grindavík/Njarðvík mætir Fram á útivelli í undanúrslitum.
Það var mikill spenna í Grindavík og hiti í leiknum, leikmenn lögðu allt í sölurnar. Stjarnan komst yfir í leiknum, gestirnir hefðu getað stækkað forystuna en heimakonur skoruðu síðustu tvö mörk leiksins og komust áfram eftir hörku leik.

Lestu um leikinn: Grindavík/Njarðvík 2 - 1 Stjarnan
Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Stjörnunnar, ræddi við Vísi eftir leikinn og var enn hátt uppi eftir leikinn. Hann leyfði sér að skjóta á góðan félaga sinn, Gylfa Tryggvason, sem stýrir liði Grindavíkur/Njarðvíkur.
„Við lokkuðum þær í gildrur sem að þær féllu alltaf í. Það tók hann 40 mínútur að átta sig á gildrunni sem er áfellisdómur á Gylfa að hafa ekki fattað það fyrr hvaða gildrur við settum á hann á miðjunni, leikstjórnin hjá honum þarf að vera betri þar. En svo hættum við bara að gera það og þær skora úr föstu leikatriði og aftur varð þetta jafn leikur," sagði Óskar eftir leikinn. Gildran snerist um að vinna boltann af ákveðnum leikmanni í ákveðnu svæði miðsvæðis á vellinum með tvöföldun.
Þeir Óskar og Gylfi héldu fyrir nokkrum árum síðan úti hlaðvarpsþættinum Ástríðunni, umfjöllun um 2. og 3. deild karla, hér á Fótbolti.net ásamt Sverri Mar Smárasyni.
Óskar ósáttur við ummæli sín
Fréttamaður setti sig í samband við þá félaga og voru þeir spurðir út í ummælin.
„Ég er ósáttur við sjálfan mig að hafa ekki farið rólegri í viðtalið og náð mér niður eftir þennan thriller, þá hefði þetta ekki komið út úr mer. Bara hrokafullt en á sama tíma einhver minnimáttarkennd sem fyllti mann eftir leik því þetta var mjög sárt tap. Er mjög stoltur af liðinu mínu sem skildi allt eftir inn á vellinum og langar að biðja Gylfa afsökunar á þessu skíta kommenti. Það er mitt að pæla og hugsa um mitt lið, ekki hans. Ég hvet fótboltaáhugamanninn að horfa á þennan leik því þarna mættust tvö lið sem gáfu gjörsamlega allt í þetta. Súrt tap þar sem andrúmsloftið var rafmagnað í 120 mínútur plús. Ég fer samt ekki ofan af því að betra liðið tapaði og við munum sýna það seinna í sumar þegar við mætum þeim í deildinni," segir Óskar við Fótbolta.net.
Fréttamaður bar ummælin líka undir Gylfa. „Gildran var leyst með því að skora tvö mörk, vinna leikinn og tryggja okkur sæti í undanúrslitunum. Ég svaf alveg í nótt. Ég elska þessa íþrótt og ég elska liðið mitt. Þvílíkt hugarfar hjá þessum stelpum. Þær voru frábærar í gær og unnu leikinn verðskuldað," segir Gylfi.
Sprengdir skalar
Fyrir leikinn í gær var sagt frá því að Anna María Baldursdóttir, fyrirliði Stjörnunnar, væri líklega með slitið krossband. Nokkrar fóru meiddar af velli hjá Stjörnunni í gær. Óskar var spurður út í stöðuna á hópnum eftir leikinn í gær, þar sem mikil orka fór í leikinn.
„Það kemur svolítið í ljós í dag hvernig leikmenn koma undan þessum leik. Við skiptum nokkrum skrokkum meiddum af velli í gær, og verður staðan tekin á þeim í kjölfarið. Það voru sprengdir skalar á mælum í gær og auk þess erum við að díla við þónokkur meiðsli. Sem betur fer erum með frábæran sjúkraþjálfara í Beka og hann verður í yfirvinnu næstu daga. Völlurinn í Grindavík kom mér á óvart, hann er sennilega einn besti grasvöllur landsins í dag en það tekur aðeins meira í að spila á grasi en gervigrasi. Þrátt fyrir að við séum í skakkaföllum að þá hafa þessar ungu stúlkur sem hafa fengið stærra tækifæri staðið sig alveg feikilega vel og hafa sýnt það að þær eru klárar í þetta. Það er stutt í næsta leik sem verður erfiður leikur gegn mínu gamla félagi, en ég fer brattur og fullur sjálfstraust inn í það verkefni með stelpunum. Við sleikjum sárin saman og mætum klárar til leiks strax eftir helgi," segir Óskar.
Stjarnan situr í 3. sæti Bestu deildarinnar með 14 stig eftir átta leiki. Grindavík/Njarðvík er í 6. sætinu með 11 stig. Stjarnan mætir Fram á mánudagskvöld og Grindavík/Njarðvík tekur á móti Víkingi í Njarðvík á þriðjudag.