Fotbolti.net
19.07.16 - 15:24
Magnús Már Einarsson

Aron Ýmir í HK (Staðfest)

Aron Ýmir Pétursson.

Aron Ýmir Pétursson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

HK hefur fengið hægri bakvörðinn Aron Ými Pétursson til liðs við sig fyrir síðari hluta sumars í Inkasso-deildinni.

Aron Ýmir yfirgaf Þrótt í síðustu viku eftir rúm tvö ár í Laugardalnum.
Aron spilaði fimm leiki með Þrótti í byrjun móts en hann missti síðan sæti sitt í liðinu til Callum Brittain.

Aron er uppalinn hjá ÍA en hann hefur skorað tvö mörk í 128 leikjum á ferli sínum.

HK er í 10. sæti í Inkasso-deildinni en þjálfaraskipti urðu hjá liðinu í gær þegar Jóhannes Karl Guðjónsson tók við af Reyni Leóssyni sem hætti störfum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.