19.07.16 - 19:00
Magnús Már Einarsson
Hilmar Ástþórsson í ÍH (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍH hefur fengið Hilmar Ásþtórsson til liðs við sig fyrir síðari hluta sumars í 4. deildinni.
Hilmar kom til Þróttar frá ÍH um mitt sumar 2014.
Hann spilaði tíu leiki með Þrótturum þegar liðið komst upp úr 1. deildinni í fyrra.
Í ár var hann í byrjunarliði í einum leik í Pepsi-deildinni með Þrótti en hann var þá í vinstri bakverði í leik gegn Val.
Hilmar hefur oftast spilað á kantinum eða frammi á ferli sínum en hann skoraði meðal annars ellefu mörk í 3. deildinni með ÍH árið 2014 áður en hann fór í Þrótt.
ÍH er á toppnum í B-riðli 4. deildar og stefnir hraðbyri á úrslitakeppnina en liðið mætir GG í kvöld.