Fotbolti.net
19.07.17 - 12:30
Magnús Már Einarsson

Leiknir F. fær miðjumann frá Litháen (Staðfest)

Úr leik hjá Leikni Fáskrúðsfirði í sumar.

Úr leik hjá Leikni Fáskrúðsfirði í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Leiknir Fáskrúðsfirði hefur fengið miðjumanninn Povilas Krasnovskis í sínar raðir.

Povilas er 28 ára Lithái en hann lék síðast með Egersunds í þriðju efstu deild í Noregi.
Í síðustu viku fékk Leiknir þá Darius Jan­kauskas frá Litháen og Vitalijs Bar­in­ovs frá Lettlandi en þeir voru báðir með í 3-0 tapinu gegn Gróttu um síðustu helgi.

Leiknismenn sitja á botninum í Inkasso-deildinni en næsti leikur liðsins er gegn Keflavík á heimavelli á laugardag.

Povilas er kominn með leikheimild og hann getur því leikið sinn fyrsta leik þar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.