19.07.18 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Davíð Sigurðsson snýr aftur til Hauka (Staðfest)

Davíð er orðinn leikmaður Hauka að nýju. Hér er hann í leik með þeim á Þróttarvelli í maí í fyrra.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Davíð Sigurðsson er genginn í raðir Hauka að nýju en hann yfirgaf félagið í vetur og flutti til Danmerkur.
Hann fékk svo leikheimild með Haukum aftur í dag og má spila með liðinu gegn Þór í Inkasso deildinni í kvöld.
Davíð sem er 25 ára gamall spilaði 19 leiki í deild og bikar með Haukum í fyrra áður en hann hélt svo til Danmerkur í vetur.
Hann er sterkur varnarmaður sem getur bæði spilað sem miðvörður og bakvörður. Davíð er uppalinn í FH, en hann hefur einnig spilað með ÍH, Reyni Sandgerði og Þrótti R.