Fotbolti.net
19.07.18 - 08:00
Ívan Guðjón Baldursson

Porto fær miðjumann lánaðan frá Arsenal (Staðfest)

Porto fær miðjumann lánaðan frá Arsenal (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Kelechi Nwakali, tvítugur miðjumaður Arsenal, mun spila fyrir portúgölsku meistarana í Porto út tímabilið.
Nwakali kemur til félagsins á láni en undanfarin ár hefur hann gert góða hluti með Maastricht og Venlo í hollenska boltanum.

Nwakali er nígerískur og hefur skoraði eitt mark í einum A-landsleik. Hann á ellefu leiki að baki fyrir yngri landsliðin.

Hjá Porto mun Nwakali berjast við öfluga leikmenn um byrjunarliðssæti, en Hector Herrera og Danilo Pereira eru báðir í leikmannahópnum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.