Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 19. júlí 2019 11:27
Brynjar Ingi Erluson
Cloé Lacasse til Benfica (Staðfest)
Cloé Lacassé er farin til Benfica
Cloé Lacassé er farin til Benfica
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Portúgalska stórliðið Benfica er búið að ganga frá kaupum á Cloé Lacasse frá ÍBV. Þetta kemur fram á heimasíðu Benfica.

Cloé, sem er 26 ára gömul, er fædd og uppalin í Kanada en hefur eytt síðustu fimm árum á Íslandi og fékk íslenskan ríkisborgararétt fyrr í sumar.

Hún á 60 mörk í 89 leikjum með ÍBV en Jón Óli Daníelsson, þjálfari félagsins, staðfesti það á dögunum við Fótbolta.net að ÍBV væri með nokkur tilboð frá erlendum liðum í Cloé.

Cloé er nú búin að semja við portúgalska stórliðið Benfica en hún gerir tveggja ára samning.

Kvennalið Benfica er gríðarlega sterkt en eins við á Fótbolta.net greindum frá í janúar á þessu ári þá var liðið búið að skora 293 mörk í B-deildinni og fá ekkert á sig.

Portúgalska liðið vann B-deildina og spilar því í deild þeirra bestu.
Sjá einnig:
Benfica skorað 293 mörk og ekki fengið á sig neitt




Athugasemdir
banner
banner