Hinn ungi og efnilegi markvörður, Rafal Stefán Daníelsson, er kominn aftur í Fram frá enska félaginu Bournemouth.
Rafal, sem er fæddur árið 2001, var á láni hjá Bournemouth frá Fram en hann er nú kominn til baka.
Hann var lánaður til félagsins í febrúar með möguleika á að vera keyptur en hann lék með unglinga- og varaliði Bournemouth.
Rafal þykir mikið efni en hann hefur tvisvar farið á reynslu hjá enska stórliðinu Liverpool.
Rafal mun æfa og spila með meistaraflokki Fram sem er í harðri toppbaráttu í Inkasso-deildinni.
Hann verður kominn með leikheimild er Fram mætir Keflavík á sunnudag.
Athugasemdir