19.08.16 - 18:30
Magnús Már Einarsson
Michu til Real Oviedo (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Spænski framherjinn Michu hefur gengið til liðs við Real Oviedo í B-deildinni í heimalandi sínu.
Hinn þrítugi Michu sló í gegn með Swansea tímabilið 2012/2013 þegar hann skoraði 22 mörk.
Eftir það lenti hann í erfiðum meiðslum og í kjölfarið yfirgaf hann herbúðir Swansea eftir lánsdvöl hjá Napoli á Ítalíu.

Á síðasta tímabili var Michu á mála hjá Langreo í spænsku D-deildinni.
Michu hefur nú samið við Oviedo en þar verður hann liðsfélagi Diego Jóhannessonar sem lék fyrr á tímabilinu sinn fyrsta leik með íslenska landsliðinu.