Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   fös 19. ágúst 2022 22:57
Ívan Guðjón Baldursson
3. deild: KFG missteig sig aftur - KH vann botnslaginn
Arnar Sveinn Geirsson skoraði í sigri KH.
Arnar Sveinn Geirsson skoraði í sigri KH.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það fóru þrír leikir fram í 3. deildinni og er gríðarlega mikil spenna á lokakafla tímabilsins.


KH vann Vængi Júpíters í fallbaráttunni og lyfti sér þannig af botninum. Liðið er núna með 14 stig eftir 17 umferðir, jafnt ÍH á stigum sem gerði markalaust jafntefli við Augnablik í kvöld.

Vængir Júpíters sita eftir í botnsætinu með 13 stig. Þeir voru að tapa sínum þriðja leik í röð, níunda tap liðsins í síðustu tíu deildarleikjum.

Topplið KFG gerði þá jafntefli við Kára og þurftu heimamenn í KFG að koma tvisvar sinnum til baka eftir að hafa lent undir. Þetta er annar leikurinn í röð sem KFG misstígur sig eftir óvænt tap gegn ÍH í síðustu umferð.

KFG er með 32 stig og gæti misst toppsætið til næstu liða fyrir neðan sem eiga leik til góða. Sindri og Dalvík/Reynir eru með 31 stig og Víðir með 29.

KH 2 - 1 Vængir Júpiters
1-0 Arnar Sveinn Geirsson ('10 )
2-0 Magnús Ólíver Axelsson ('33 )
2-1 Sindri Snær Eyjólfsson ('91 )
Rautt spjald: Aðalgeir Friðriksson, Vængir ('96)

KFG 2 - 2 Kári
0-1 Gabriel Þór Þórðarson ('30 )
1-1 Jóhann Ólafur Jóhannsson ('37 )
1-2 Axel Freyr Ívarsson ('56 )
2-2 Ólafur Bjarni Hákonarson ('67 )

Augnablik 0 - 0 ÍH


Athugasemdir
banner
banner