Blackburn hefur gengið frá samningi við þýska miðjumanninn Lewis Holtby.
Holtby kemur frítt til Blackburn eftir að samningur hans hjá Hamburg í Þýskalandi rann út í sumar.
Holtby kemur frítt til Blackburn eftir að samningur hans hjá Hamburg í Þýskalandi rann út í sumar.
Hinn 29 ára gamli Holtby þekkir til í enska boltanum því hann spilaði 42 leiki með Tottenham á sínum tíma og barðist þá meðal annars við Gylfa Þór Sigurðsson um sæti í liðinu.
Þá fór hann einnig til Fulham á láni þegar hann var samningsbundinn Tottenham.
Blackburn er í tólfta sæti í Championship deildinni með tíu stig eftir sjö leiki.
Athugasemdir