Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 19. september 2020 19:21
Ívan Guðjón Baldursson
2. deild kvenna: HK gerði jafntefli við Sindra - Hamar vann
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Tveir leikir fóru fram í 2. deild kvenna í dag þar sem topplið HK gerði óvænt jafntefli við botnbaráttulið Sindra.

Sindri komst í tveggja marka forystu í upphafi síðari hálfleiks en Karen Sturludóttir og Bryndís Gréta Björgvinsdóttir náðu að jafna á rétt rúmum stundarfjórðungi.

Meira var þó ekki skorað og lokatölur urðu 2-2.

Guðrún Halla Finnsdóttir gerði þá eina mark leiksins í sigri Hamar gegn ÍR.

HK 2 - 2 Sindri
0-1 Siggerður Egla Hjaltadóttir ('23)
0-2 Samira Suleman ('48)
1-2 Karen Sturludóttir ('53)
2-2 Bryndís Gréta Björgvinsdóttir ('64)

Hamar 1 - 0 ÍR
1-0 Guðrún Halla Finnsdóttir ('69)

Það tekur tíma fyrir stöðutöfluna að uppfærast.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner