Fotbolti.net
19.10.16 - 11:00
Magnús Már Einarsson

Aron Bjarki framlengir við KR (Staðfest)

Aron í leik með KR.

Aron í leik með KR.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aron Bjarki Jósepsson hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við KR. Hann greinir frá þessu á Twitter.

Samningur Arons rann út um síðustu helgi en nú er ljóst að hann verður áfram hjá KR.

„Er spenntur fyrir komandi tímum í Vesturbænum og er mjög stoltur af því að vera áfram leikmaður KR,\" sagði Aron á Twitter.

Hinn 26 ára gamli Aron Bjarki er uppalinn hjá Völsungi en hann hefur leikið með KR frá árinu 2011. Aron hefur verið inn og út úr liði KR undanfarin ár en hann spilaði fimmtán leiki með KR á nýliðnu tímabili.

Aron vann sér sæti í liði KR um mitt mót í sumar og hjálpaði liðinu að landa Evrópusæti eftir magnaðan lokasprett.
„Ég er ánægður með það hvernig hefur ræst úr mínu sumri persónulega. Mér hefur gengið vel eftir að ég fékk sénsinn í liðinu um mitt sumar vegna meiðsla annarra leikmanna. Willum hefur síðan sýnt mér mikið traust og notað mig áfram og kann ég honum miklar þakkir fyrir það,\" segir Aron Bjarki í viðtali við Fótbolta.net undir lok sumars.

3 ár áfram í @KRreykjavik ✅ Er spenntur fyrir komandi tímum í Vesturbænum og er mjög stoltur af því að vera áfram leikmaður KR #allirsemeinn pic.twitter.com/sUL9zrteAI

— Aron Josepsson (@AronBjarki) October 19, 2016

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.