Fotbolti.net
19.10.16 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Jóhann Kristinn tekinn við Völsungi (Staðfest)

Jóhann Kristinn tekinn við Völsungi (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Jóhann Kristinn Gunnarsson er nýr þjálfari meistaraflokks karla hjá Völsungi sem leikur í 2. deildinni næsta sumar.

Jóhann skrifaði undir samning við félagið í gær og mun hann einnig sjá um afreksþjálfun Völsungs og FSH, auk þess að halda utan um 2. flokk karla og líta reglulega við á æfingar hjá yngri flokkum.
Jóhann þjálfaði Völsung í tvö ár frá 2009 til 2011 og tók svo við Þór/KA í Pepsi-deild kvenna árið 2012 og gerði að Íslandsmeisturum sama ár. Jóhann hefur þjálfað kvennalið Akureyrar síðan þá en hefur nú ákveðið að snúa aftur til Völsungs.

Völsungur endaði í 9. sæti 2. deildarinnar í sumar, þremur stigum fyrir ofan Ægi sem féll ásamt botnliði KF.

Heimild: Volsungur.is

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.